Leita í fréttum mbl.is

Lax-lax-lax

Gott mál..þá höldum við efnuðu ferðamönnunum lengur á landinu. Ekki veitir okkur af gjaldeyrinum. En það er líka eins gott að þeir fái gott að borða og geti borið okkur vel söguna í þeim efnum.

Ég hef tvisvar á þessu sumri farið á veitingahúsið Grillhúsið í Vestmannaeyjum..Ég ætla að leyfa mér að lofa og lasta núna:)
Í fyrra skiptið fékk ég mér kjúklingasalat. Það var mjög gott með frábærri dressingu Í seinna skiptið sem var fyrir tæpri viku fengum við hjónin okkur djúpsteiktan fisk..(Frúin ætlaði að sukka smá). Í stuttu máli: Óætt. Fiskurinn var eins og gúmmí. Ég kallaði á þjóninn og spurði hvað þetta væri eiginlega..Skötuselur svaraði hann..Ég er vön eldamennsku og veit hvernig á að elda ýmsar tegundir af fiski.."Heyrðu það var ekki til annar fiskur". En að djúpsteikja skötusel og eyðileggja þar með gott hráefni er ótrúleg eldamennska. Ég skal láta kokkinn vita sagði þjónn..Meira heyrðum við ekki og ekki kom kokksi og meirihlutinn lá ósnertur á diskunum þegar við fórum. Ég vona að þetta verði ekki oft upplifun útlendinga sem virtust í meirihluta á þessum annars góða veitingastað.


mbl.is Lax enn að ganga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EITT ENN!

Drögum andann rólega..Er Katla að vakna? Hættulegasta eldfjallið! Vonum það besta samt. Nú kemst Ísland örugglega á heimskortið!
mbl.is Gos hugsanlega hafið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki bara kirkjan.

Það er ekki bara innan kirkjunnar sem þöggun hefur átt sér stað í kynferðisafbrotamálum. Allt þjóðfélagið er núna fyrst að læra að taka á svona málum. En það afsakar ekki þöggunina innan kirkjunnar. Ég vildi óska að þessar konur fengju allar viðurkenningu á réttmætum ásökunum sínum. En engin er bættari með því að hengja einhverja í gálga..Því síður að fá tugi milljóna í peningum! Ég gæti trúað að besta líðanin eftir viðurkenningu á réttmæti orða sinna..væri FYRIRGEFNING. Að fyrirgefa þeim sem hefur orðið á í "messunni"
mbl.is Sár yfir að hafa varið föður sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreppuþjóðin

Líklega fer best á því að vera ekki að hafa skoðun á kjörum ákveðinna stétta. En það er forkastanlegt að lítill hópur geti hægt á efnahgslegum bata þjóðar sem er að reyna að krafla sig upp úr kreppu. Ekki er það afgreiðslufólkið í Leifstöð, þaðan af síður ræstingafólkið..Nei, nú eru það eru flugvirkjarnir!! Stundum hafa flugmenn og flugumferðastjórar verið í svipuðum sporum. Fólkið sem á líklega ekki fyrir salti í grautinn:(
mbl.is Flugi áfram frestað til 10:10
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig flugum?

Er verið að fresta randaflugum eða fiskiflugum..Ég er nú svo rugluð að ég hélt að það ætti að segja bara að flugi væri frestað..ekki flugum Blush
mbl.is Flugi frestað til 10:10
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Harpa

Eftir Hörpu hafa margir tónlistarmenn beðið...og það lengi. Vonandi festist ekki hrunstimpillinn við húsið. Þeir eiga það ekki skilið. Til hamingjuhljóðfæraleikarar og söngvarar.Smile Screen shot 2011 05 03 at 08.12.02


Hann er kominn!

Var einhver að tala um að Gnarr stæði ekki við gefin loforðGrin ... Er þetta ekki ísbjörninn sem á að fara í Húsdýragarðinn?Tounge ..
mbl.is „Stofnum ekki mönnum í hættu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mosaik

Ég fór á frábæra sýningu í Iðuhúsinu í dag. Þar stendur yfir sýning Bergljótar Gunnarsdóttur á Mosaikverkum hennar. Sýningin er sú fimmta sem hún heldur. Þær fyrri voru í Reykjavík, á Bíldudal og í Xiamen í Kína. Bergljót eða Beggó flutti einmitt heim í október sl. eftir rúmlega fjögurra ára búsetu í Kína. Það verður engin svikin af að berja munina hennar augum en sýningin stendur til 25. maí.

Sumarkveðjur úr Stafneshverfi, hvar "ekki" snjóaði í dag Tounge

Beggó 001


HEIÐARLEGA kynningu takk!

Eftir að þetta varð ljóst er það næsta mál sem brennur á fólki: Hver getur tekið að sér að kynna Icesave fyrir okkur almúganum á mannamáli? Ekki blaðamennirnir sem gerðu sig að athlægi á Bessastöðum. Nú þarf að finna einhverja ALVÖRUaðila (helst ekki stjórnmálamenn) til að kynna málið. Þetta atriði er það sem ég hef heyrt allan tímann sem Icesave hefur verið í umræðunni: Af hverju fáum við ekki að vita almennilega um hvað það snýst í ÖLLUM atriðum?
mbl.is Þjóðin kýs að nýju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hetjur hafsins

Hefðu þeir ekki þurft að fá áfallahjálp?
"Eftir að Farsæll GK kom inn í höfnina kom sjokkið. Grétar kvaðst hafa hringt í skipsfélaga sína seint í gærkvöldi og þeim hafi öllum liðið eins. Fundið fyrir áfalli vegna þessa alvarlega atviks."
Þetta hefur verið skelfileg lífsreynsla. Guði sé lof að allt fór vel.


mbl.is Aldrei lent í öðru eins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Sigurbjörg Eiríksdóttir
Sigurbjörg Eiríksdóttir
Mamma og amma en ung í anda að EIGIN mati. Nýorðin langamma....
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband