Leita í fréttum mbl.is

Hvassahraun!!!

Er ekki allt í lagi með fólk? 

Ég ferðast oft milli Reykjavíkur og Keflavíkur. Hvassahraun er í lengri fjarlægð frá núverandi flugvelli í Reykjavik en Keflavíkurflugvelli. Hvað er að? Ef leggja á niður núverandi flugvöll í Reykjavík..sem ég veit að margir eru á móti þá myndi ég velja Keflavíkurflugvöll. Við eigum fullkomnar skurðstofur og frábært starfsfólk í Keflavík og ef það myndi ekki duga þá þyrfti bara litla þyrlu til að ferja fólk til Reykjavíkur. Giska á tíu mínútur í flugi. Íslandið góða! Á það endalausa peninga? Hugsið góða fólk!


mbl.is „Verið að vekja upp gamlan draug“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Einsog Ómar bendir á, þá virðist sem ekki hafi verið horft til hvað fjöllin eru nálægt og há.

Ekki nema standi til að lækka þau !

Reykjavíkurflugvöllur er á besta stað.

Græðgin verður að víkja fyrir skynsemini!

Lærðum við EKKERT á hruninu ?

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 25.6.2015 kl. 20:59

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Hreint ótrúleg afurð Rögnunefndar eftir allan þennan tíma.

Hvassahraun, steinsnar frá Kef !!!

Heimir Lárusson Fjeldsted, 25.6.2015 kl. 21:00

3 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Hver borgaði fyrir þetta!?

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 25.6.2015 kl. 21:12

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Isavia, ríki og borg að ég held.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 25.6.2015 kl. 21:16

5 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Flugturninn gæti verið uppi á Keili, myndi sóma sér vel þar.

Keflavíkurflugvöllur kemur vel til greina.  Bandaríkjaher skildi eftir sig fullkomið sjúkrahús.  Ég veit þó ekki hvernig staða þess húsnæðis er í dag, en það má koma því í gagnið á mun ódýrari hátt en með því að byggja nýjan flugvöll úti í hruni undir Reykjanesfjallgarði.

Reykjanesbær gæti líka orðið miðstöð þjóðfélagsins, flytjum höfuðborgina þangað. laughing

Tómas Ibsen Halldórsson, 25.6.2015 kl. 22:24

6 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Sigurbjörg.

Keyrirðu ekki um Hvassahraun ef þú ferð frá Reykjavík til Keflavíkur? Hvernig getur þá verið styttra að fara frá Reykjavík til Keflavíkur en frá Hvassahrauni?

Guðmundur Ásgeirsson, 25.6.2015 kl. 22:32

7 identicon

Á ca. 1000 ára fresti verða eldsumbrot á Reykjanesskaganum. Það eru ca. 1000 ár síðan síðast. Ef jarðeldar byrja á Vigdísarvelli til norðurs, gæti hraunið verið komið yfir Reyjanesbrautina á mjög stuttum tíma. Reykanesið með sínum 4 eldstöðvum er bráðlifandi og í mótun.
Er höfuðborg ennþá höfuðborg án flugvallar?

Bretarnir gáfu Íslensku Þjóðinni (ekki Rögnunefnd) Reykjavíkurflugvöll og hann er á frábærum stað.
Ég skil ekki þessa áráttu að vilja fjarlægja slíkan menningararf svo ekki sé minnst á nauðsyn þessa flugvallar á þessum svað í óbreyttu formi!

Anna Kvaran (IP-tala skráð) 25.6.2015 kl. 23:33

8 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Mín persónulega skoðun er sú að það eigi að framlengja flugbrautir núverandi vallar út í Skerjafjörð, líkt og Ómar Ragnarsson og fleiri hafa nefnt sem möguleika. Þannig myndi losna um pláss við hina endana sem standa nær miðbæ Reykjavíkur. Þá þyrfti ekki að rífast um nálægð við Landspítalalóðina. Jafnframt myndi það færa okkur nær því takmarki að gera vegtengingu yfir Skerjafjörð og Álftanes í áttina að Reykjanesbrautinni og stytta þannig leiðina til KEF.

Guðmundur Ásgeirsson, 25.6.2015 kl. 23:57

9 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Ragnar. Réttara hefði verið hjá mér að segja að það taki lengri tíma að aka að Hvassahrauni en þaðan til Keflavíkur. Það tekur mun lengri tíma. Þarf að fara í gegn um allar byggðirnar. Það tekur lengstan tímann.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 26.6.2015 kl. 09:16

10 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Annað hvort verður flugvöllurinn kyrr í Reykjavík sem eg held að flestir vilji eða hann sameinast alþjóðaflugvellinum í Keflavík (Sandgerði)tongue-out Anað er bara rugl.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 26.6.2015 kl. 09:20

11 identicon

Tómas Ibsen:

" Bandaríkjaher skildi eftir sig fullkomið sjúkrahús."

Það "fullkomna sjúkrahús" er alls ekki samkvæmt Evrópskum stöðlum okkar, heldur er það hersjúkrahús, a la USA.  Mesti gallinn við allt gamla herdótið, er að þar er lagt fyrir 110 v rafmagn og er því ekki nothæft, nema með mjög kosnaðarsömum breytingum.

Þetta flugvallabrölt Dags B mun kosta yfir 50 milljarða, og sennilega meir.

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 26.6.2015 kl. 11:25

12 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Fullkomnustu skurðstofur landsins eru í Keflavík..að ég hef heyrt.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 26.6.2015 kl. 13:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurbjörg Eiríksdóttir
Sigurbjörg Eiríksdóttir
Mamma og amma en ung í anda að EIGIN mati. Nýorðin langamma....
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband