Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

Ekkert má nú ;)

Það er eins gott að þingmenn okkar passi upp á orðfærið. Jæja ef ekkert verra hefur verið sagt í ræðupúlti hins háa Alþingis er ég sátt ;)
mbl.is Áminntur fyrir tal um magakveisu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er komið að skuldadögum?

Er loksins eftir eitt og hálft ár að koma hreyfing á mál þessarra útrásarvíkinga. Hætt er við að þetta verði dropi í hafi..Talað er um hundruð MILLJÓNA..ekki hundruð MILLJARÐA.
mbl.is Eignir Jóns Ásgeir og Hannesar kyrrsettar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skýrslan dottin úr umræðunni?

Gárungarnir segja að sést hafi til Jóns Ásgeirs og Björgólfs Thor læðast með dínamít upp á Eyjafjallajökul í gærkvöldi..W00t ..
mbl.is Skarð komið í varnargarðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farið varlega

Það er ekki hægt að segja að á Íslandi sé gúrkutíð núna. Endalausar alvöru fréttir af mönnum og náttúru. Vonandi verður gæfan okkur hliðholl. Vísindamenn segja gosið vera undir jöklinum og að ekki muni renna hraun..Förum varlega í dómum, bæði um fólk og fjöll.
mbl.is Vatnsborð hækkað um 1 metra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilhjálmur Bjarnason

Útsvarið er einn skemmtilegasti þátturinn á Ruv. Það sem setur hann á stall hjá mér er hve margir skemmtilegir karakterar hafa tekið þar þátt..Joyful Stjórnendur og þátttakendur hafa haldið sig við léttleikann. Ekki veitir af í því umhverfi sem við erum í. Vilhjálmur er í hópi þeirra alhressustu! Og frábært var útspilið hjá honum að neita að taka við gjafabréfinu frá AE..Við þurfum svona fólk í framvarðarstöðu hjá okkur!
mbl.is Hafði ekki lyst á gjafabréfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takið upp reiknitölvuna moggamenn ;)

Skemmtunin fór þó úr böndunum hjá sumum, því 10 voru vistaðir í fangageymslum lögreglu..Þar af voru 4 kærðir fyrir ölvun og óspektir en hinir 7 voru einfaldlega ósjálfbjarga vegna ölvunar. Ég lærði í barnaskóla að 4 og 7 væru 11.Blush Mér finnst persónulega orðið allt of mikið af fljótfærnislegum villum á netmiðlunum. Sennilega er mbl.is ekki verst hvað þetta varðar.Wink
mbl.is Páskafríið byrjar með látum í miðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Sigurbjörg Eiríksdóttir
Sigurbjörg Eiríksdóttir
Mamma og amma en ung í anda að EIGIN mati. Nýorðin langamma....
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband