Leita í fréttum mbl.is

HEIÐARLEGA kynningu takk!

Eftir að þetta varð ljóst er það næsta mál sem brennur á fólki: Hver getur tekið að sér að kynna Icesave fyrir okkur almúganum á mannamáli? Ekki blaðamennirnir sem gerðu sig að athlægi á Bessastöðum. Nú þarf að finna einhverja ALVÖRUaðila (helst ekki stjórnmálamenn) til að kynna málið. Þetta atriði er það sem ég hef heyrt allan tímann sem Icesave hefur verið í umræðunni: Af hverju fáum við ekki að vita almennilega um hvað það snýst í ÖLLUM atriðum?
mbl.is Þjóðin kýs að nýju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Svo sannarlega "orð í tíma töluð" Sigurbjörg. Fjölmiðlafólkið féll á prófinu a.m.k. ættu sumir starfsmenn (núverandi og fyrrverandi) RUV að fara í rækilega naflaskoðun !?

Kveðja, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 21.2.2011 kl. 08:01

2 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Við getum ekki treyst á fjölmiðla - því miður - ég hef áður kallað eftir heiðarlegum hagfræðingum til þess að fara yfir málin á mannamáli. Pantaðar niðurstöður eru falskar - okkur vantar fagfólk sem segir satt. Mér er ljóst að hagfræðilega séð er hægt að komast að nokkrum niðurstöðum í stórum málum þar sem álitaefnin eru mörg. En það hlýtur að vera hægt að taka saman heildarmyndina og gefa þá upp nokkra mögulega framhaldsþræði.

Á meðan fjölmiðlar eru hlutdrægir og með vanhæfa fréttamenn er þeim ekki treystandi.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 21.2.2011 kl. 08:05

3 identicon

Gaman að borga skuldir annara.! En er sammála að fá einhvern skilning í þetta. Samt ætla ég EKKI að borga skuldir og brask Bjöggana.

Númi (IP-tala skráð) 21.2.2011 kl. 08:35

4 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Tek heilshugar undir með þér Sigurbjörg!

Sigurður Þorsteinsson, 21.2.2011 kl. 09:50

5 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Takk fyrir innlitin..Nú er að vera vakandi og hlusta og fylgjast með!

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 21.2.2011 kl. 10:06

6 Smámynd: Jón Atli Kristjánsson

Góð ábending Sigurbjörg. Það er mikil eftirspurn eftir alvöru aðilum og heiðarlegum hagfræðingum. Þekki samt nokkra. Smá grín um hagfræðinga.  USA forseti vildi aðeins ráða til sín einhenta hagfræðinga.  Hvers vegna, jú svo þeir gætu ekki alltaf sagt, " on the other hand ".

Mögulega erum við að leita að svona hagfræðingi, sem gefur beinskeytt svör.

Jón Atli Kristjánsson, 21.2.2011 kl. 15:07

7 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Vel hugsað og bráðnauðsynlegt Silla.  Jón Atli, handalausir myndu þeir líklega leggja kraftinn í heilbrigða hugsun og framsetningu okkur hinum til smá skilning á öllum hliðum málefnisins, eða hvað?

Bergljót Gunnarsdóttir, 21.2.2011 kl. 20:14

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hverju orði sannara

Axel Jóhann Hallgrímsson, 21.2.2011 kl. 21:01

9 Smámynd: Óskar Arnórsson

Á mannamáli er Icesave skuldin tilkomin vegna bankaráns. Búið er að kenna því fólki sem hefur allskonar völd að allt í lagi sé að láta skrílinn borga sjálft tjónið af svona bankaránum.

Heilaþvegnir alþingismenn selja síðan atkvæði sín hver öðrum í býtti fyrir allskonar stuðnig í öðrum hagsmunamálum og svo er skrílnum bara sagt að éta það sem úti frýs.

Fjárhagslegir terroristar er ekkert nýirði nema á Íslandi. Fólk er ekki að kyngja því að svona skuldatilbúningur gengur bara upp hjá bönkum. Þetta er skipulagðir glæpir sem standa á bakvið þetta og lögfræðileikfimi er aðalvopnið til að villa fólki sýn.

Bankar á Íslandi eru eins og heilögu kýrnar í Indlandi. Eru hluti af gamalli trú og ekki má stugga við þeim þegar þær ráfa um skítandi í postulínsbúðum af því að allir eru búnir að læra að þær séu heilagar.

Bankar eru ekki heilagar stofnanir. Bankar hirða allan gróða þegar vel árar, enn ef tap verður þá getur skríllinn borgað. Þó svo að bankin sé rændur í leiðinni.

Það þarf ekki neina hagfræðinga til að skilja svona þvælu. Flestir lærðu í barnaskóla að þetta passar hvergi í löndum sem gera tilkall að vera kölluð "siðmenntuð".

Óskar Arnórsson, 22.2.2011 kl. 17:38

10 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Vel skrifað og svo satt Óskar!

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 23.2.2011 kl. 17:37

11 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Leyfði mér að setja aths. Óskars sem blogg inn á síðuna mína, vona að þið fyrirgefið mér stuldinn.

Bergljót Gunnarsdóttir, 23.2.2011 kl. 20:31

12 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Gott hja ykkur Silla og Oskar:)

Heimir Lárusson Fjeldsted, 24.2.2011 kl. 02:39

13 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Beggó..Það var nú bara gott hjá þér!

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 25.2.2011 kl. 08:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurbjörg Eiríksdóttir
Sigurbjörg Eiríksdóttir
Mamma og amma en ung í anda að EIGIN mati. Nýorðin langamma....
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband