Leita í fréttum mbl.is

Skattar og skotgrafarhernaður.

Ég er sammála Hönnu Birnu. Þessi skammhugsaða fátkennda eilífa skattahækkun bæði hjá ríki og borg er ótrúleg.
Sigurður Bessason, formaður Eflingar stéttarfélags, óttast einnig að hærri skattar og álögur muni ýta undir samdrátt. Það er augljóst. Í stað uppbyggingar eru niðurrif. Mér er nokk sama t.d um hækkanir á brennivíni..EN áttu þær ekki að skila einhverju í ríkiskassann. Mér skilst að þær tekjur séu litlar. Ætlar fólk aldrei að læra. Svo er vinkona mín Ragnheiður Elín sögð vera með skotgrafarhernað á Alþingi þegar hún reynir að standa í fæturna. Margur heldur mig sig. Það á allavega við "einhverja" sem talað hafa á vegum VG á síðasta áratug. Ég held að ríkistjórnin sé farin á taugum.
mbl.is Skattheimta sögð auka samdrátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósnertanlegur?

Heldur þessi álfur að hann sé ósnertanlegur??? "Ég held að saksóknari geti alveg náð fram sömu niðurstöðu með mannlegri nálgun og eðlilegum fyrirspurnum bréflega" Þvílíkur hroki. Ég er orðlaus.
mbl.is Yfirheyrðir fram á kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auglýsing?

Hrikalegur hraði hefur verið á manninum..Eins gott að ekki hlaust slys af þessu. Ætli hann hafi ekki verið þýskur?..Þar eru ekki nein mörk á hraðbrautunum og menn keyra á 200 km. hraða:( En af hverju er verið að nefna Wolksvagen í þessarri frétt? Auglýsing eða.....
mbl.is Tekinn á 198 km hraða á leið í flug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið var

Það liggur við að maður haldi að það sé kominn 1. apríl..Loksins, loksins bendir eitthvað til að hjól sé að fara að snúast. Eitt hjól af stað þýðir örugglega að öll hin undir bílnum fara að hreyfast. Við þurfum á öllu okkar að halda hér á Suðurnesjum..Kannski snýst þessi frétt því líka um leið um stöðvun brottflutnings lækna frá Íslandi.
mbl.is Meðferðir hefjast í ágúst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kallar og kellingar

Sjálfsagt gott hjá Ásmundi að biðjast afsökunar, bara svo að Kellingarmálið leysist og hægt sé að ræða önnur mál hér á svæðinu. Ekki veitir nú af. En nú er umræðan heitust um hvernig orðaval hann notaði. Ég hef aldrei séð manninn en horfði á þetta myndband. Mér fannst hann segja það sem við erum flest að tala um hér suður með sjó. Auðvitað á fólk að gæta þess í hvernig búningi orðin eru sett fram. En ég skildi hann fullkomlega. Hann var bara pirraður eins og við erum hér á seinagangi stjórnvalda.

En nú ætlum við að horfa vonaraugum til Oddnýjar Harðardóttur sem er orðin formaður Fjárlaganefndar og ætla mætti að skildi þetta alvarlega ástand hérna. Til gamans má geta þess að í yfir 40 ár hefur kallinn minn kallað mig kellingu:) Ég skil eiginlega ekki þessi læti..Brettið upp ermar og komið málunum á hreyfingu!

Inn með aðalatriðin, út með aukaatriðin!


mbl.is Ásmundur biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rjúpur

Rjúpnaveiðimenn athugið! Það er að bresta á brjálað veður! Ég hef nú aldrei verið hrifin af því þegar verið er að drepa þessi grey. En þetta er víst leyft. Farið varlega og hlustið á veðurspána.
mbl.is Útlit fyrir afar slæmt veður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öskuill

Nú er mér nóg boðið. Ég hef horft upp á niðurskurð í þjóðfélaginu eins og aðrir. Fólk missir vinnu og það nær ekki endum saman. Biðraðir eru út úr dyrum hjá hjálparstofnunum og fólk á ekki fyrir mat. Ein birtingarmynd ástandsins eru uppsagnir á sjúkrahúsunum. Skurðstofum er lokað og þjónustan minnkar. Starfsfólkið sem enn er þar eftir gefur eins mikið af sjálfu sér og það getur. En hvenær verður álagið því ofviða?

Tengdamóðir mín varð fyrir því áfalli að detta og lærbrotna í fyrrinótt. Hún bíður aðgerðar á LSH í Fossvogi. Þar voru þau svör gefin nú fyrir stundu að vonast væri til að aðgerðin gæti farið fram í dag! Lengi hefur mann grunað að eldra fólk sé frekar látið bíða lengur en aðrir hópar en þetta gengur fram af mér. Hjúkrunarfólk sagði mér í gær að bið eftir aðgerð gæti orðið allt að þrír sólarhringar. Á meðan er miklu magni af verkjalyfum beitt til að kvalirnar séu ekki óbærilegar.

Og enn eru boðaðar sparnaðaraðgerðir í heilbrigðismálum. Læknar og annað hjúkrunarfólk flýr land. Ég er ekki að stinga höfðinu í sandinn...Mér er fulljóst að við urðum fyrir áfalli sem þjóð. En hvað varð um loforð núverandi stjórnvalda um Velferðarþjóðfélag? Mér finnst einfaldlega forgangsröðunin röng og ekki í samræmi við gefin loforð.


Skammarlegt þjóðfélag!

Í hvernig þjóðfélagi búum við. Nú erum við komin á þann stað að fjöldi atvinnulausra sem hefur verið það samfleitt í þrjú ár, er dottið út af bótum..Á sama tíma les maður svona ótrúlega frétt: "Í fyrra fengu 323 einstaklingar sem voru með meira en tíu milljónir í laun, hlunnindi, lífeyri og greiðslur aðrar en fjármagnstekjur, greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun."
Í sömu frétt er sagt frá því að 3632 framteljendur hafi átt 100 milljónir hver. Og þeim fjölgaði mikið milli ára í svæsnustu kreppu síðari tíma! Það eru greinilega ekki allir eins fátækir eins og fólkið sem kemur í þúsunda tali til hjálparstofnana þessa dagana til að fá mjólk og brauð! Ótrúleg frétt!
mbl.is 3.632 eiga 750 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær endir á raunum námumanna

Gleðifréttir sem snerta alla. Þeir í Síle eru til fyrirmyndar. Vonandi verður þessi atburður til að auka öryggi starfsfélaga þeirra um allan heim. Ekki veitir víst af.
mbl.is Öllum bjargað upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðgerðir STRAX

Þetta gengur ekki lengur. Uppbygging landsins gengur allt of hægt. Tvö ár frá hruni og margt fólk er orðið vonlaust. Ég geri ráð fyrir að ég sé ekki ein um að þekkja marga örmagna. Ég er bara venjuleg mamma, amma og langamma (að ég held)..Ég var að hlusta á Guðmund Ólafsson á Rás 2..Þar malar hann hvern miðvikudag. Hann segir að það séu aðeins 2-3% landsmanna í brýnni þörf fyrir aðstoð með húsnæðislánin. "Ekki rjúka út í mótmælaaðgerðir og rugl" sagði hann. Og síðan: Ekki horfa til ríkissins í von um að það bjargi! Er hann einhver sérlegur talsmaður yfirvalda?
Ef ríkið skapar ekki jarðveg fyrir fólk og fyrirtæki verður þjóðfélagið einfaldlega keyrt á tíu kílómetra hraða..
Ég var ein af þeim sem studdi þessa stjórn til valda fyrir tæpum tveim árum..Ég hef lært mína lexíu og vil að hún fari frá STRAX..Ég vil sjá starfstjórn allra flokka tímabundið og kosningar í vor.
Reynum samt að láta ekki reiðina ná tökum á okkur og eigum eins góðan dag og hægt er.
Silla.
mbl.is Engin verkáætlun kynnt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Sigurbjörg Eiríksdóttir
Sigurbjörg Eiríksdóttir
Mamma og amma en ung í anda að EIGIN mati. Nýorðin langamma....
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband