Leita í fréttum mbl.is

ESB setur skilyrði

Nú hlýtur endanlega að vera búið að gera út um þann snefil af áhuga sem fjórðungur landsmanna hefur fyrir inngöngu í ESB. Frá bankahruni höfum við búið við skítkast, hótanir og leiðindi frá grönnum okkar í Evrópu. Er ekki komin tími til að opna augun og draga umsóknina til baka svo fjárhagslegi skaðinn verði ekki enn meiri?
mbl.is Vinna á bak við tjöldin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Venjulegir Íslendingar eru að súpa seiðið af því hvernig íslenskir "útrásarvíkingar" höguðu sér í Evrópu.

Ég veit hvernig margir "venjulegir" Íslendingar höguðu sér erlendis fyrir hrun, alveg eins og vitleysingar.

Mér finnst fínt að ESB setji okkur skilyrði.  Það sýnir okkur kanski að ESB er ekki alveg steingelt fyrirbæri.

Ég vona að Ísland gangi í ESB.  Það mun hjálpa okkur, venjulegu Íslendingunum.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 15.6.2010 kl. 07:54

2 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Stefán...Ég er nú ekki sannfærð um það. Ég viðurkenni að ég var jákvæð fyrir skoðun svo fólk gæti tekið upplýsta afstöðu. En hrokinn í ráðamönnum þarna bendir til að við fáum litlu ráðið og að það verði bara stigið ofan á okkur eins og peð. Ég held einmitt að þessu fyrirbæri ESB sé að hnigna ásamt evrunni. Fara löndin bara ekki að taka upp sína gömlu gjaldmiðla aftur? Mér sýnist víða vera óánægja sem ekki verður eingöngu skýrð með efnahagskreppu heimsins.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 15.6.2010 kl. 08:02

3 identicon

Er ekki hrokanum fyrst og fremst lýst á síðum Morgunblaðssins? Staðreindin er hins vegar að ráðamenn og almenningur í Evrópu tekur umsókn okkar opnum örmum.

Það er hins vegar ljóst að við þurfum að klára Icesave málið hvort sem okkur líkar betur eða verr og hvort sem við göngum í Evrópusambandið eða ekki.

Valdimar Birgisson (IP-tala skráð) 15.6.2010 kl. 08:34

4 identicon

Hér sést vel hvernig ESB vinnur. Verhagen utanríkisráðherra Hollands segir að við eigum að borga Icesave áður en við fáum inngöngu þar en ESB muni svo hjálpa okkur með málið ! Ef þetta eru ekki mútur, hvað eru þá mútur ? Nei takk, betri er einn fugl í hendi en tveir í skógi, forðum okkur eins langt og við getum frá þessari ESB vitleysu.

Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 15.6.2010 kl. 08:43

5 identicon

Við eigum að fara með Icesave firrir dóm, þjófar Íslendinga eiga að borga þetta, firr fæst ekki sátt um aðgerðir.Það þarf líka að skoða hvernig stóð á því að eftirlitskerfi þessara þjóða leifði þessa útrás í sínum löndum eins og hér.

Sigurbjörg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 15.6.2010 kl. 08:54

6 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Ég legg til að Alþingi haldi hátíðarfund 17. júní og samþykki þingsályktunartillögu Unnar Brár og fleirri "um að draga til baka umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu." Betri þjóðhátíðargjöf er varla hægt að óska sér. Tillagan er hér:

http://www.althingi.is/altext/138/s/1337.html

Loftur Altice Þorsteinsson, 15.6.2010 kl. 11:11

7 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Það er með öllu óskiljanlegt að þessu umsóknarferli sé haldið áfram.

Guðrún Sæmundsdóttir, 15.6.2010 kl. 17:52

8 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Það er uppgjafartónn í Össuri í dag. Hann nánast lýsir yfir andláti eigin stjórnar.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 19.6.2010 kl. 10:12

9 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Ég tel að yfirlýsing Össurar séu klókindi, enda er hann gamall refur. Í raun er hann að smala köttunum með þessari orðræðu, því að atkvæðagreiðsla er framundar á Alþingi.

Sjáið bara hversu auðfús Ögmundur sá bröndótti köttur svarar kallinu:

Ég hef ekki sannfæringu fyrir því að ríkisstjórn með aðild allra stjórnmálaflokka sé til þess fallin að stuðla að þessu núna,

 
Prófsteinn á ríkisstjórnir er ekki hvernig þær eru samansettar heldur hvað þær gera og þá hvort og hversu vel þeim tekst að starfa í þágu þjóðarinnar. Það þýðir á þessum örlagatímum að standa vörð um auðlindir okkar til sjávar og sveita og stuðla að opnu, lýðræðislegu þjóðfélagi.Ég hef ekki sannfæringu fyrir því að ríkisstjórn með aðild allra stjórnmálaflokka sé til þess fallin að stuðla að þessu núna. Það sem við þurfum er vissulega góð málefnaleg samvinna og opið lýðræði. Það er verkefnið en ekki að stuðla að flokkspólitískri samtryggingu í þjóðfélaginu. 

Í stuttu máli hef ég ekki sannfæringu fyrir því að við náum betur saman um að tryggja betur almannaeign á auðlindum, að stokka upp fiskveiðistjórnunarkerfið og tryggja opinbert eignarhald á orkuauðlindum með aðkomu fleiri flokka að ríkisstjórn. Ég hef ekki sannfæringu fyrir því.

 
Ég ætla ekki að ráða í hvað býr að baki þessum hugrenningum Össurar Skarphéðinssonar. Hann verður að svara því sjálfur. Það er augljóst að þessi hugmynd má aldrei verða til þess að setja hér allt í frost. Íslendingar þurfa á því að halda að við störfum í þágu þjóðarinnar.

Það þýðir í mínum huga að standa vaktina gegn fjármagnsöflum, erlendum og innlendum, sem ásælast auðlindir okkar og það hefur ríkisstjórninni ekki tekist sem skyldi. Henni hefur heldur ekki tekist sem skyldi að starfa í anda opins, gagnsæs lýðræðis og þetta er verkefnið. Menn eiga ekki að hlaupast frá þessum skyldum sínum og drepa málum á dreif með tali af þessu tagi.

Þetta hefur verið einkenni á íslenskum stjórnmálum í langan tíma, í aðdraganda hrunsins og í miklu lengri tíma. Og krafan núna er um breytt stjórnmál, um breytta aðkomu að stjórnmálum og það er það sem er verkefnið miklu frekar en að horfa til stjórnarmynstursins sem einhverrar allsherjar lausnar.

Hver og einn flokkur þarf að endurskoða sína afstöðu til vinnubragða í stjórnmálum. Það er verkefnið en ekki að kæfa slíka umræðu í einhvers konar samtryggingu,

 

Þarna fer köttur sem ætlar að standa vaktina með Össuri og hlýða kallinu. 

Loftur Altice Þorsteinsson, 19.6.2010 kl. 11:13

10 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Ég held að þetta stjórnarsamstarf sé nú endanlega að springa! Flott innlegg Loftur Sandgerðingur!

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 19.6.2010 kl. 11:17

11 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Við kjósum og ESB getur farið í rass og rófu!

Sigurður Haraldsson, 21.6.2010 kl. 10:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurbjörg Eiríksdóttir
Sigurbjörg Eiríksdóttir
Mamma og amma en ung í anda að EIGIN mati. Nýorðin langamma....
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband