Leita í fréttum mbl.is

Í annarri íbúðinni!!!

Á hvaða tímapunkti urðum við rugluð Íslenska þjóðin? Lásum við ekki fyrir hrun um lystisnekkjur og milljarðaíbúðir?..Gerðist eitthvað í vitrænni hugsun okkar?..Urðum við hálf blind á þetta? Að einn maður hafi getað átt milljarðaíbúðir hefði átt að ýta við okkur. Sumir hafa jú alltaf séð ósómann. Of fáir og þeir töluðu fyrir daufum eyrum. Jafnvel ofsóttir. Við skulum vona að þessar mannlegu náttúruhamfarir sem banka og auðmannaliðið olli, opni huga okkar.
mbl.is Guardian: Búið að birta stefnuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hreyfing?

Það mætti halda að AURskriða hafi fallið. Nú rekur hver fréttin aðra um kyrrsetningar og fangelsun..Nú er það skilanefnd Glitnisbanka sem fer fram á kyrrsetningu..Venjulegu fólki hefur fundist með ólíkindum að einn aðili eigi t.d íbúð upp á nokkra milljarða. Við skulum vona að þessi langi tími sem liðin er frá hruni hafi verið notaður vel og það sé að skila sér nú.
mbl.is Óska kyrrsetningar eigna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er nú fínt

Ótrúlegir tímar sem við höfum lifað síðustu vikur. Það má segja um flugið núna eins og sagt var um sjóferðirnar áður: Kóngur vill sigla en byr hlýtur að ráða. Menn vilja fljúga en mökkur vill ráða;) En í tengslum við þetta: Starfsfólk í Flugstöð Leifs Eiríkssonar er margt og starfar hjá hinum ýmsu aðilum. Iclandair sendi sitt fólk heim fyrir hálfum mánuði í tvo daga..kauplaust!!! Þetta var starfsfólk veitingadeildar, hlaðdeildar og fleiri. Jú þið fáið kannski útborgað um mánaðarmót en þið þurfið að vinna fyrir því aukalega seinna..Skömm að þessu og þar að auki ólöglegt! Svo nú um helgina kom fólk á sína vakt og var á staðnum þrátt fyrir að flug lægi niðri. Eins gott að fólk skoði sinn rétt vel.
mbl.is Flugvellir að opnast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kötturinn sagði ekki ég, hundurinn sagði ekki ég, svínið sagði ekki ég!

Mér datt í hug bók Steingríms Arasonar um litlu gulu hænuna! Eða var hænan rauð kannski? Mér finnst það magnað hvað nafni höfundar, Steingrímur er iðinn við að hengja sig í fortíðina. Sérstaklega ef honum finnst hann geta bent á, eins og í þessu viðtali að núverandi seðlabankastjóri sé nú með lægri laun en fyrirrennarar hans sem áhöld væru um hvort hefðu unnið fyrir sínu! Ætli Steingrímur viti að á vinnustöðum er fólk farið að hlæja að þessu viðkvæði sem hann reynir alltaf að koma að..Sko þetta er allt komið frá hinum, vondu köllunum, ekki mér, þið vitið ;)

Við viljum stjórnun í dag, klíkulausa, opna og allt uppi á borðum..Það á ekki að vera undir borði hver lofaði bankastjóra hærri launum.


mbl.is Hækkun kemur ekki til greina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert má nú ;)

Það er eins gott að þingmenn okkar passi upp á orðfærið. Jæja ef ekkert verra hefur verið sagt í ræðupúlti hins háa Alþingis er ég sátt ;)
mbl.is Áminntur fyrir tal um magakveisu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er komið að skuldadögum?

Er loksins eftir eitt og hálft ár að koma hreyfing á mál þessarra útrásarvíkinga. Hætt er við að þetta verði dropi í hafi..Talað er um hundruð MILLJÓNA..ekki hundruð MILLJARÐA.
mbl.is Eignir Jóns Ásgeir og Hannesar kyrrsettar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skýrslan dottin úr umræðunni?

Gárungarnir segja að sést hafi til Jóns Ásgeirs og Björgólfs Thor læðast með dínamít upp á Eyjafjallajökul í gærkvöldi..W00t ..
mbl.is Skarð komið í varnargarðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farið varlega

Það er ekki hægt að segja að á Íslandi sé gúrkutíð núna. Endalausar alvöru fréttir af mönnum og náttúru. Vonandi verður gæfan okkur hliðholl. Vísindamenn segja gosið vera undir jöklinum og að ekki muni renna hraun..Förum varlega í dómum, bæði um fólk og fjöll.
mbl.is Vatnsborð hækkað um 1 metra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilhjálmur Bjarnason

Útsvarið er einn skemmtilegasti þátturinn á Ruv. Það sem setur hann á stall hjá mér er hve margir skemmtilegir karakterar hafa tekið þar þátt..Joyful Stjórnendur og þátttakendur hafa haldið sig við léttleikann. Ekki veitir af í því umhverfi sem við erum í. Vilhjálmur er í hópi þeirra alhressustu! Og frábært var útspilið hjá honum að neita að taka við gjafabréfinu frá AE..Við þurfum svona fólk í framvarðarstöðu hjá okkur!
mbl.is Hafði ekki lyst á gjafabréfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takið upp reiknitölvuna moggamenn ;)

Skemmtunin fór þó úr böndunum hjá sumum, því 10 voru vistaðir í fangageymslum lögreglu..Þar af voru 4 kærðir fyrir ölvun og óspektir en hinir 7 voru einfaldlega ósjálfbjarga vegna ölvunar. Ég lærði í barnaskóla að 4 og 7 væru 11.Blush Mér finnst persónulega orðið allt of mikið af fljótfærnislegum villum á netmiðlunum. Sennilega er mbl.is ekki verst hvað þetta varðar.Wink
mbl.is Páskafríið byrjar með látum í miðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Sigurbjörg Eiríksdóttir
Sigurbjörg Eiríksdóttir
Mamma og amma en ung í anda að EIGIN mati. Nýorðin langamma....
Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband