Leita í fréttum mbl.is

Í annarri íbúðinni!!!

Á hvaða tímapunkti urðum við rugluð Íslenska þjóðin? Lásum við ekki fyrir hrun um lystisnekkjur og milljarðaíbúðir?..Gerðist eitthvað í vitrænni hugsun okkar?..Urðum við hálf blind á þetta? Að einn maður hafi getað átt milljarðaíbúðir hefði átt að ýta við okkur. Sumir hafa jú alltaf séð ósómann. Of fáir og þeir töluðu fyrir daufum eyrum. Jafnvel ofsóttir. Við skulum vona að þessar mannlegu náttúruhamfarir sem banka og auðmannaliðið olli, opni huga okkar.
mbl.is Guardian: Búið að birta stefnuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Tvær íbúðir í New York og tvær í London. Íslenskir skattgreiðendur borga brúsann.

Já, var ekki DO ofsóttur af Samfylkingu jafnaðarmanna?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 13.5.2010 kl. 11:04

2 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Það er næsta víst:(

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 13.5.2010 kl. 11:20

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þjóðinni var sagt að upp væri runnið, sakir góðrar stjórnar, endalaust góðæri og allir gætu orðið ríkir ef þeir aðeins köstuðu sér út í iðuna og tæku þátt í dansinum kringum gullkálfinn.

Afleiðingarnar... þarf að ræða það?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 13.5.2010 kl. 13:12

4 Smámynd: Óskar Arnórsson

Eg held ekki að íslenska þjóðin sé neitt "rugluð" eða alla vega ekki meira enn gengur og gerist. Þegar drifkraftur glæpamanna er kókaín og sex, verður þetta útkoman. Alveg sama þó það sé í stórum eða litlum mæli. Íslenska þjóðin ætti að vera búin að fá smá hugmynd um hvernig það er að hafa fíkla á framfæri...nú er að renna af þeim víman og ég er að tilbúin með meðferð handa þeim...www.scandicpro.se Hún var skráð í Svíþjóð fyrir 3 dögum. Það eru samt ekki allir útrásarvíkingar háðir kóki. Morfín og amfetamín er algengt. Það var svo mikið að gera í "buisnessinum", að þetta var 18 tíma vinna á sólarhring...sem auðvitað gengur ekki til lengdar..

Óskar Arnórsson, 13.5.2010 kl. 21:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurbjörg Eiríksdóttir
Sigurbjörg Eiríksdóttir
Mamma og amma en ung í anda að EIGIN mati. Nýorðin langamma....
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband