6.1.2011 | 10:59
Þarf einhver að vera hissa!
Á tímum sem þessum þar sem lítið sem ekkert er gert til að efla atvinnustigið, skattar hækkaðir á fólk og fyrirtæki er ekki von til þess að mikið gerist..
Mun færri fyrirtæki stofnuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júní 2015
- Mars 2015
- Júlí 2014
- Janúar 2014
- Október 2013
- September 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
Bloggvinir
- benediktae
- beggo3
- boggi
- gthg
- hlf
- jonatlikristjansson
- jonmagnusson
- jonsnae
- kristinn-karl
- ludvikjuliusson
- martasmarta
- milla
- noldrarinn
- nonniblogg
- prakkarinn
- reykur
- sjonsson
- sigrunzanz
- sleggjudomarinn
- skagstrendingur
- sumri
- thorsteinnhgunnarsson
- vallyskulad
- ziggi
- valdimarjohannesson
- ragnarbjarkarson
- samstada-thjodar
- stefanjul
Athugasemdir
Það er hart að þurfa að sitja uppi með jafn duglitla ríkisstjórn. Verst er þó að hún getur ekki leyst upp í frumeindir sínar !
Kveðja, KPG.
Kristján P. Gudmundsson, 6.1.2011 kl. 11:57
Sæl og blessuð og gleðilegt nýtt ár.
Kostur þess að hafa vinstri stjórn er að þá fá kjósendur samanburð. Því má ekki gleyma að vinstri flokkarnir fengu mjög góða kosningu og skýrt umboð. Sjálfstæðisflokkur hafði lengi verið ráðandi stjórnarflokkur.
Nú sjá kjósendur glöggt kostina í stöðunni !!
Jón Atli Kristjánsson, 6.1.2011 kl. 12:31
Nei Silla það þarf enginn að vera hissa!
Samanburður og skýrt umborð, en umboð til hverra og hver stenst samanburðinn í dag? Ég öfunda stjórnarflokkana ekki af því að þurfa að reyna að hreinsa upp sóðaskapinn eftir Sjálfstæðisflokkinn og fleiri, jafnvel sjálfa sig að hluta.
Hvort Ríkisstjórnin er að vinna vinnuna sína vel er annað mál, en guð forði okkur frá Sjálfstæðisflokknum þangað til hann hefur gjörbreyst. Stefna þeirra var alltaf góð að mínu mati, þar til Davíð byrjaði að hygla að sínum og gefa nánast burt öll bitastæðustu fyrirtækin í eigu þjóðarinnar, með undirsátana, þ.e. samráðherra og Framsókn sér við hlið, með ráðum og "dáð" og líta síðan undan þegar þiggjendurnir launuðu gjafmildina með stærstu gripdeildum í sögu þjóðarinnar og notuðu hinn fyrrverandi þjóðarauð til að geta líka stolið innanfrá.
Hvar var svo Samfylkingin þegar Geir og Ingibjörg tóku við?
Ég held að bæði Davíð og Geir, hafi svona eftirá að hyggja, verið mjög heppnir að losna frá klúðrinu sem þeir voru búnir að koma sér og flokknum í. Landsdómsmál Geirs finnst mér alveg út í hött því þar á að hengja einn fyrir alla og tvískinnungur stjórnarflokkanna kemur þar best í ljós.
Kostirnir eru ekki bara loforð, heldur efndir líka, ef þessir afdönkuðu pólitíkusar, allir sem einn, af hvaða flokki sem þeir eru, gætu skilið það. Þá fyrst færu hjól atvinnulífsins að snúast aftur.
Sjálfstæðisflokkinn skortir sterka forystu það er augljóst, sem og óspillta. Ekki ætla ég með þessum orðum að bera spillingu upp á þá forystu sem nú er, þó ýmsir meðlimir hennar séu á ansi gráu svæði. Hvort myndarlegi drengurinn með flotta nafnið er efni í leiðtoga veit ég ekki fremur en aðrir.
Mér sýnist Vinstri Grænir ekkert nema grænir og Samfylking út úr kú. Samfylking hah!
Framsókn er í mínum augum ekki til, þó hún haldi áfram uppteknum hætti að pissa utan í allt og alla í von um náðarbrauð. Í guðanna bænum ekki fóðra hana og leyfum henni að lognast hljóðlega út af í næstu kosningum.
Og hvað skal nú til varnar verða vorum sóma?
Bergljót Gunnarsdóttir, 7.1.2011 kl. 14:14
Flottur pistill Begga! Mér finnst alveg ótækt að flokkarnir skuli ekki hreinsa til hjá sér. Hvort sem það er Þorgerður Katrín eða Björgvin eða öll hin sem á einhvern hátt tengjast þessu, skuli ekki sjá sóma sinn í að hætta á þingi. Fyrr verður enginn trúverðugleiki.
Bestu kveðjur.
Silla.
Sigurbjörg Eiríksdóttir, 7.1.2011 kl. 16:00
Takk fyrir það. Sömuleiðis bestu kveðjur.
Beggó.
Bergljót Gunnarsdóttir, 7.1.2011 kl. 16:12
Ágætu Beggó og Silla, ég hjartanlega sammála ykkur um, að Sjallarnir þurfa að hreinsa til í sínum ranni í síðasta lagi fyrir næstu kosningar. Þeir ættu reyndar þegar búnir að því !
Með kveðju, KPG.
Kristján P. Gudmundsson, 9.1.2011 kl. 18:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.