3.9.2010 | 11:40
Þvílíkt lygalið
Það er líklega rétt að við höfum bara séð toppinn á ísjakanum..9/10 eru neðansjávar
Skelfilegt að þjóðin hafi verið steinsofandi, næstum öll!
Svikamyllan afhjúpast enn frekar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júní 2015
- Mars 2015
- Júlí 2014
- Janúar 2014
- Október 2013
- September 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Desember 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
Bloggvinir
- benediktae
- beggo3
- boggi
- gthg
- hlf
- jonatlikristjansson
- jonmagnusson
- jonsnae
- kristinn-karl
- ludvikjuliusson
- martasmarta
- milla
- noldrarinn
- nonniblogg
- prakkarinn
- reykur
- sjonsson
- sigrunzanz
- sleggjudomarinn
- skagstrendingur
- sumri
- thorsteinnhgunnarsson
- vallyskulad
- ziggi
- valdimarjohannesson
- ragnarbjarkarson
- samstada-thjodar
- stefanjul
Athugasemdir
Kannski skiptir ekki lengur máli hvað hægt er að upplýsa um svik og þjófnað á ræningjatímabili kapitalismans.
Það sem máli skiptir er að ríkisstjórn, eftirlitsstofnanir og ríkissaksóknari lýsi yfir skorinort hvort þess sé að vænta að málin verði afgreidd frammi fyrir dómstólum og hvort menn verði sakfelldir.
Nóg er komið af kjaftæi og nægur tími hefur verið til að hefja dómsmeðferð.
Árni Gunnarsson, 3.9.2010 kl. 12:02
Viðskiptaflétta var þetta kallað í einhverri fréttinni eins og verið væri að lýsa eðlilegasta hlut en ekki harðsvíruðum glæpamönnum sem gerðu samblástur um milljarða svik og þjófnað.
Meðvirkni eða heimska? Veit ekki.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.9.2010 kl. 15:03
Þetta er auðvitað svívirðilegt athæfi af allra hálfu. Frá A til Ö hefur kerfið fallið frá stjórnmálamanninum til athafnamannsins. Þetta er allt saman orðið einn allsherjar farsi sem engan endi tekur. Tjahh ekki fyrr en einhverjir gerist blórabögglar og setjist í fangaklefa fyrir slektið sem kom okkur í þessi vandræði á heimsvísu. En það svosem losar okkur ekki við skuldir í útlandinu né atvinnuleysi né neitt annað. Þetta er ísjaki sem bráðnar og þá kemur í ljós að hann er fullur af drullumalli hinna og þessara sem bruðluðu og unnu á sviksamlegan hátt í hinum og þessum e há effum.....
Katrín G E, 3.9.2010 kl. 15:22
það er bara alltaf að koma meir og meir í ljós, hvort sem litið er til þess sem gerðist hér í útrásinni og í örðum málum sem skotið hafa upp kollinum nýlega eins og t.d. biskupsmálinu, að meðvirkni þjóðarinnar í heild, með þeim brotlegu "aðstoðuðu" þá brotlegu við þá glæpi sem að þessir aðiliar frömdu.
Komið hefur fram bæði varðandi biskupsmálið og útrásina, að gerendur í þessum báðum málum nutu skjóls (meðvirkni), þverskurðar þjóðarinnar, allt frá lægstu stigum þjóðfélagsins til Bessastaða. Frú Vigdís, sem jafnan er talin vera réttsýn, sanngjörn og greind kona, trúði ekki konum þeim er ásökuðu Ólaf biskup um þá glæpi sem hann framdi gegn þessum konum. Eins var með stærstan hluta þjóðarinnar.
Útrásarvíkingarnir nutu á sama hátt trausts og trúnaðar þverskurðar þjóðarinnar, frá lægstu stigum til Bessastaða. Öllum þeim sem varð það á að benda á þá staðreynd að líklegast væri ekki allt með felldu, varðandi útrásina, var lýst sem öfundsjúkum kjánum er ekkert vit hefðu á þeirri snilld sem þessir gulldrengir þjóðarinnar voru að hrinda í framkvæmd.
Það er því í rauninni ekkert annað í boði en að halda áfram þeirri vinnu er hófst með gerð RNA, vinnu sem hvergi nærri er lokið, þó svo að það virðist sem núverandi stjórnvöld telji skýrsluna hafa verið punktinn fyrir aftan i-ið. Skýrslan er í rauninni ekki annað en kafli í sögu þjóðarinnar, er hún var á hraðferð utan vegar þeirrar dyggða er fólk almennt vill halda sér á. Skýrslan benti á þá sem voru í fararborddi þess utanvegaaksturs.
Þjóðarinnar bíður hins vegar sálgreining eigin þjóðarsálar í þeirri viðleitni að þekkja aftur einkennin, er svipaðar hamfarir eru í uppsiglingu og útrásin var, með það að markmiði að hleypa meðvirkninni ekki í þann farveg og hún var með útrásinni.
Á sama hátt bíður fjölmiðla og menntastofnana heiðarleg naflaskoðun á sínum þætti í meðhlaupi útrásarinnar og ærlegur ásetningur og efndir um breytta hegðun, er spornað gæti gegn þeirri þróun en hér varð.
Kristinn Karl Brynjarsson, 3.9.2010 kl. 16:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.