Leita í fréttum mbl.is

Öskuill

Nú er mér nóg boðið. Ég hef horft upp á niðurskurð í þjóðfélaginu eins og aðrir. Fólk missir vinnu og það nær ekki endum saman. Biðraðir eru út úr dyrum hjá hjálparstofnunum og fólk á ekki fyrir mat. Ein birtingarmynd ástandsins eru uppsagnir á sjúkrahúsunum. Skurðstofum er lokað og þjónustan minnkar. Starfsfólkið sem enn er þar eftir gefur eins mikið af sjálfu sér og það getur. En hvenær verður álagið því ofviða?

Tengdamóðir mín varð fyrir því áfalli að detta og lærbrotna í fyrrinótt. Hún bíður aðgerðar á LSH í Fossvogi. Þar voru þau svör gefin nú fyrir stundu að vonast væri til að aðgerðin gæti farið fram í dag! Lengi hefur mann grunað að eldra fólk sé frekar látið bíða lengur en aðrir hópar en þetta gengur fram af mér. Hjúkrunarfólk sagði mér í gær að bið eftir aðgerð gæti orðið allt að þrír sólarhringar. Á meðan er miklu magni af verkjalyfum beitt til að kvalirnar séu ekki óbærilegar.

Og enn eru boðaðar sparnaðaraðgerðir í heilbrigðismálum. Læknar og annað hjúkrunarfólk flýr land. Ég er ekki að stinga höfðinu í sandinn...Mér er fulljóst að við urðum fyrir áfalli sem þjóð. En hvað varð um loforð núverandi stjórnvalda um Velferðarþjóðfélag? Mér finnst einfaldlega forgangsröðunin röng og ekki í samræmi við gefin loforð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skelfilegt, eina orðið yfir þetta. Hvar endar svona nokkuð.

Svandís Georgsdóttir (IP-tala skráð) 26.10.2010 kl. 10:40

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Skelfilegt þetta orðið og eins og Svandís segir hér að ofan - hvar endar þetta

Jón Snæbjörnsson, 26.10.2010 kl. 10:42

3 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Takk fyrir innlitin!

Vitið þið að ég á bágt með að trúa að t.d Steingrímur eða Jóhanna þyrftu að bíða svona:(((

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 26.10.2010 kl. 10:45

4 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Ekki ætti ég von á að þau þyrftu að bíða neitt

var ekki verið að sækja fótbrotinn göngumann með þyrlu ekki fyrir svo mörgum dögum ? hér mætti kanski spara líka fyrst ekkert liggur á ?

Jón Snæbjörnsson, 26.10.2010 kl. 11:11

5 identicon

Ég má til með að bæta fleiru við, segi eins og Sigurbjörg: Er líka öskuill. Það þyrftu fleiri að segja reynslusögur úr heilbrigðisgeiranum, Ég sagði áðan: Hvernig endar þetta: Svar: með hörmungum, við eigum frábært starfsfólk í heilbrigðisgeiranum, algjörlega frábært, en það er ekki hægt að bjóða því endalaust að vinna við meiri og meiri niðurskurð og að vinna við þessar aðstæður. Flestir geta sagt frá reynslu sinni bara við það að komast til heimilislæknis, það tekur orðið nokkrar vikur, svo fólk leitar í auknum mæli á læknavaktirnar. Þar bíður það í allt að 4 klst. Það hef ég reynt, og gafst reyndar upp og er ekki enn búin að hitta lækni. Lét það bara eiga sig. Þannig verður það sjálfsagt að fólk fer ekki nema í ýtrustu neyð, og einnig á það örugglega við um lyfjakaup, fólk hættir að leysa út lyf, vegna þess hversu dýr þau eru.

En ég spái í því hvort það sama gilti um ráðamenn þjóðarinnar, s.s. Jóhönnu Sig. og Steingrím J. Hvort þau þyrftu að bíða í allt að 3 sólarhringa ef þau lærbrotnuðu eins og tengdamóðir þín Sigurbjörg. Nei, ég hugsa ekki, þetta eru nú einu sinni ráðamenn þjóðarinnar, svo mikilvæg og háttsett að þau yrðu áreyðanlega tekin í forgang. Ég mynnist þess þegar minn maður var að jafna sig eftir alvarlegt bílslys að hann mátti bíða í, á annað ár til að komast á Reykjalund í endurhæfingu, svo lendir Steingrímur J. í bílslysi að mig minnir  í desember mánuði og var komin á Reykjalund í febrúar þar sem sjónvarpsmenn tóku viðtal við hann, þar dásamaði hann Reykjalund, sem aldrei verður hægt að dásama nóg, svo góður endurhæfingarstaður, en það sem sló mig var að Steingrímur var komin í endurhæfingu innan svo stutts tíma. Ég man að við hjónin horfðum á þetta og sögðum: Að hann skuli ekki skammast sín að láta sjá sig í þessu viðtali, nei kannski var hann bara svo vitlaus að hann áttaði sig ekki á því hvað biðin væri löng á Reykjalund. Ég vona að ég fari rétt með tímastningarnar á hvenær hann slasaðis og fór á Reykjalund, kannski skeikar einhverju s.s. máuði eða svo.

Svandís Georgsdóttir (IP-tala skráð) 26.10.2010 kl. 11:12

6 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Gott innlegg Svandís! Hafi verið mismunun í þjóðfélaginu áður er hún bara að versna:( Bilið breikkar einfaldlega!

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 26.10.2010 kl. 11:17

7 identicon

Leitt að heyra með tengdamóður þína.

Mágkona föður míns heitins datt í borg óttans FYRIR HRUN þegar allt átti að vera eins og blómstirð eina og fór hún úr mjaðmarlið. Það fylgja því gríðarlega kvalir og því alltaf brugðist mjög skjótt við þegar er i sinni heimasveit Skagafirði. En á borgarspítalanum var hún látin engjast af kvölum  sexfaldan þann tíma sem venja er, þó þarf hún að ferðast um 40 km í sjúkrabíl þegar hún er heima hjá sér.

Innra skipulag spítalanna er í rúst og hefur verið lengi svo niðurskurður hefur auðvitað gríðarleg áhrif  til hins verra. En það sér það hver sá sem þarna hefur þurft að vera löngum stundum með sjúkling að eitthvað mikið er að, og út í hött að 1/3 af tímum sérfærðinga fer í það að hlaupa á milli deilda og jafnvel húsa/hverfa í stað þess að sinna sjúklingum, það er ekki góð nýting á dýrum starfskrafti.

(IP-tala skráð) 26.10.2010 kl. 11:21

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.10.2010 kl. 12:13

9 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Þetta er bara ömurlegt það á að láta fjölmiðla fjalla um þetta þá kanski gerist eitthvað í málinu það á ekki að láta bjóða sér svona þjónustu í vestrænu ríki

Guðborg Eyjólfsdóttir, 26.10.2010 kl. 13:31

10 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Það er engu líkara en þjóðin sé komin á hausinn. Svo erum við að senda fólk til fjarlægra landa til að lina þrautir þarlendra!

Þessu óðagoti verður að linna og hlýðninni við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn sem makar krókinn á heimsku stjórnvalda.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 26.10.2010 kl. 20:06

11 Smámynd: Hörður B Hjartarson

    Já ójá Heimir !   Það er stundum gott að berja höfðinu við steininn og segja : "Þetta er ekki mínum  FOKKI  að kenna" - þar eru englar alheimsins , sem hvergi komu nærri HRUNINU .

Hörður B Hjartarson, 27.10.2010 kl. 19:38

12 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Hörður, minn kæri bloggvinur. Stundum er betra að flýta sér hægt..Í hvaða fokki heldurðu að Heimir sé;)? En nýjustu fréttir er snerta þessa færslu mína eru að tengdamóðir mín er núna á skurðarborðinu..Svo ekki var þetta langt frá sannleikanum sem hjúkrunarfólkið sagði mér.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 27.10.2010 kl. 19:51

13 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Heil og sæl Sigurbjörg.

1. Það er mjög mikilvægt að vita þegar botninum sé náð.

2. Greina hvað við getum gert til þess að ná okkur sem fyrst upp úr núverandi ástandi.

3. Fá fókið með.

4. Hefjast síðan handa. 

 Ef við erum ekki ánægð með núverandi ástand þarf að komast á stað. Mér er nokk saman hverjir gerðu mistök hér áður fyrr. Þeir verða hvort sem er ekki kallaðir til aftur. Mér skiptir mestu hvað verið er að geraí dag og hvert er stefnt. 

Vona að tengdamóður þinni heilsist vel. Miðað við allar sögur af tengdamæðrum er mín stórskrítin, hún er nefnilega algjörlega frábær. 

Sigurður Þorsteinsson, 27.10.2010 kl. 22:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurbjörg Eiríksdóttir
Sigurbjörg Eiríksdóttir
Mamma og amma en ung í anda að EIGIN mati. Nýorðin langamma....
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband