Leita í fréttum mbl.is

Aðalmálið að verða bæjarstjóri

Hefur ekkert breyst hjá okkur Íslendingum? Er það gert að úrslitamáli að fá bæjarstjórastólinn? Eru það ekki málefnin sem vega mest? Vonandi eru þetta rangt haft eftir Y-listafólki!
mbl.is Ekki gert kröfu um neitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Samfylkingin verður að líta í eigin barm og taka úrslit kosninganna mjög alvarlega." Þetta sagði Jóhanna í Silfrinu á sunnudaginn.  Þetta sama sagði Hrannar B. Arnarsson við Pressuna í morgun, um leið og hann tjáði sig um Jóhanna tjái sig ekki um ummæli Sigmundar, að sinni.  Ætli rétt túlkun sé ekki sú að Hrannar B. er ekki búinn að skrifa yfirlýsinguna fyrir Jóhönnu.

  Vel má vera að Samfylkingin taki úrslitin alvarlega, en túlki þau vitlaust.  Krafan um bæjarstjórastolin í tveimur af stærstu sveitarfélaga landsins, þrátt fyrir tap, bendir nú ekki til þess að flokkurinn túlki ósigurinn, sem skort á eftirspurn eftir Samfylkingunni.

 Í Hafnarfirði, þar sem Samfylkingin hefur haft meirihluta tvö síðustu kjörtímabil, tapar tveimur mönnum og bæjarstjórinn, sem setti sig í "baráttusæti", nær því eðlilega ekki kjöri.   Þau tíðindi berast hins vegar, að í viðræðum Samfylkingar og VG um nýjan meirihluta, hafi komið upp sú krafa, að hinn fallni bæjarstjóri, haldi áfram í embætti.

 Í Kópavogi, þar sem flokkurinn hefur rekið "stæka" stjórnarandstöðu í 10 ár hið minnsta, tapar flokkurinn manni.  Oddviti flokksins í Kópavogi, fer samt í minnihlutaviðræður, með það fyrir augum að enda sem bæjarstjóri og kallar það "trúnaðarbrest", þegar út spyrst að Y-listinn, sé því andvígur, enda hafi framboðið, haft það á sinni stefnuskrá, að ráðinn yrði "ópólitískur" bæjarstjóri.  

 Samfylkingin skilur ekki svona "vitleysu" eins og ætla að fylgja stefnuskrá sinni, eftir kosningar, enda tíðkast þau vinnubrögð ekki í Samfylkingunni.  Hvar er t.d. skjaldborgin um heimilin og atvinnulífið í landinu?  Það er nú ekki nema rúmlega árs gamalt loforð.  Staðan í dag er hins vegar sú, að staða heimilana og atvinnulífsins hafa versnað til muna.

Kristinn Karl Brynjarsson, 2.6.2010 kl. 10:24

2 identicon

Mér finnst Guðríður mjög öflug kona og hún er klárlega besti kandídatinn í stöðu bæjarstjóra í Kóp.

Gína (IP-tala skráð) 2.6.2010 kl. 10:24

3 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Ég veit nákvæmlega ekkert um Guðríði..Hún getur vel verið mjög fær. En ef aðrir í stjórnarmyndunarviðræðunum hafa uppi skoðanir um ópólitískan vinnumann í stólinn, finnst mér ótrúlegt að láta steyta á eigin ágæti..

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 2.6.2010 kl. 10:30

4 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Sigurbjörg. Þú metur stöðuna rétt. Það besta í stöðunni væri að ráða utanaðkomandi í stöðuna. Samkvæmt óstaðfestum fréttum vill hins vegar Guðríðu hefja þreyfingar á Gunnar Birgissyni til að kanna vilja hans

Sigurður Þorsteinsson, 2.6.2010 kl. 10:45

5 identicon

Sammála. Fullt af hæfu fólki sem getur tekið að sér það framkvæmdastjórastarf sem bæjarstjórastarfið er.

Boggi (IP-tala skráð) 2.6.2010 kl. 11:13

6 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Það er soldið fyndið, að eftir alla þá gagrýni sem fráfarandi meirihluti bæjarstjórnar Kópavogs, fékk árum saman, vegna fjárhags bæjarins, að þá er fjármálastjóri bæjarins ráðinn sem bæjarstjóri.

Kristinn Karl Brynjarsson, 4.6.2010 kl. 21:17

7 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Mér fannst líka fyndið hversu vel hún taldi sjálfa sig ráða við starfið:) Skrítið að hampa sálfri sér svona.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 5.6.2010 kl. 11:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurbjörg Eiríksdóttir
Sigurbjörg Eiríksdóttir
Mamma og amma en ung í anda að EIGIN mati. Nýorðin langamma....
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband