Leita í fréttum mbl.is

Ísland.

Fyrsti snjó-skellur vetrarins virðist vera núna hér á suðvesturhorninu. Nú brosa vinir mínir fyrir norðan út í annað. Í fyrsta skipti á þessum vetri er ég veðurteppt og kemst ekki í vinnuna. En við búum á Ísland en vorum kannski farin að trúa öðru :) Ef veðurfarið á okkar norðlægu slóðum væri það eina sem íþyngdi okkur, þá væri bara gaman að lifa. En nei aldeilis ekki. Icesave og önnur óáran, vitfirrtir kaupsýslu og bankamenn eru miklu verri en nokkur snjókorn. Við snjóinn ólst þessi þjóð upp en að hafa alið við brjóstið slíka ræningja er þyngra en tárum taki. En upp upp mitt geð..dugir ekki að láta þessa útrásarvíkinga taka frá sér geðið líka :)
mbl.is Erfið færð víða um land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Er ekki unaðslegt að kúra undir hlýrri sænginni og heyra hríðina bylja á rúðunni?

Annars... mikið var að það kom "almennilegt" veður!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.2.2010 kl. 08:26

2 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Jú..Ég kann vel við svona veður! Ef það stendur ekki of lengi..En það er hægt að segja um þetta eins og kóngur vill sigla en byr hlýtur að ráða..Ég ætlaði að heiman um níu, en ófært..enda síðast mokað þar sem ég er í dreifbýli :):) Og mér sýnist enn vera skafrenningur..Hvernig er í Grindavíkinni?

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 25.2.2010 kl. 08:39

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Veturinn 1993-94 er mér minnisstæður. Þá skall á norðaustan bylur í október og honum slotaði í mars. Það var varla hríðarlaus dagur, dúraði stundum í nokkra klukkutíma svo var hann skollinn á aftur. Þann vetur var ég 30 tíma að komast frá Sauðárkróki á Blönduós á Lödu sportinum mínum. Þar varð ég svo að bíða á annan sólarhring áður en ég komst út á Skagaströnd.

Ég viðurkenni að það var farið að örla á smá þreytu út í veðrið og snjóinn þegar voraði.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.2.2010 kl. 08:56

4 identicon

Ég er búin að vera fullkomlega sátt við snjóleysið í vetur og var að vona að þannig yrði það áfram, en því miður.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 25.2.2010 kl. 18:45

5 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Já, við bítum á jaxlinn Jónína og vonum að þetta standi stutt:)

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 25.2.2010 kl. 19:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurbjörg Eiríksdóttir
Sigurbjörg Eiríksdóttir
Mamma og amma en ung í anda að EIGIN mati. Nýorðin langamma....
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband