Leita í fréttum mbl.is

Þar kom að því!

Er það virkilega satt að sættir séu að nást milli stjórnar og stjórnarandstöðu?? Gott ef rétt er. En er það samt ekki best að við fáum að kjósa 6.mars? Eða er hún svo borðleggjandi niðurstaðan að fjórflokkarnir hætti ekki á neitt. Eitthvað finnst mér skrítið við þetta allt saman.
mbl.is Kröfðust pólitískra sátta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert ekki ein um það að velta þessu fyrir þér. Þegar kosið verður 6 mars og samningarnir verða felldir eins og allt bendir til þá ætti Icesave málið að geta fari fyrir dómstóla. Það má telja víst að þá verða öll gögn í því máli opinber gögn. Það kæmi sér líklega afar illa fyrir marga. Getur verið að stjórnin og ráðgjafar hennar sem voru starfsmenn Landsbankans séu tilbúin að gera nær allt til að svo verði ekki. Mér sýnist allavega að skift hafi verið um haus á Steingrími J. því hann talar nýjum tungum, ég spyr í forundran: Hvaða nýji kall er þetta í fréttunum sem lítur út eins og Steingrímur?

Anna Björg Hjartardóttir (IP-tala skráð) 8.2.2010 kl. 21:24

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Það glittir í eitthvað sem gæti verið að hagsmunir þjóðarinnar verði settir ofar hagsmunum flokkana. Það væri óskandi staða, þess vegna töldu margir að þjóðstjórn væri nauðsyn. Það vekur athygli að Jóhanna gagnrýndi Steingrím áður en hún fór í frí, fyrir að hafa notað Svavar í stað fagmanns. Síðan kemur Kristrún Heimisdóttir og tætir vinnubrögðin í sig. Það virðist svo sem að einhver uppstokkun sé í vændum.

Sigurður Þorsteinsson, 8.2.2010 kl. 21:37

3 identicon

Það væri óskandi Sigurður að hagsmunir þjóðarinnar séu leiðarljósið en því miður held ég að það sé ekki það sem er að gerast. Innbyrðis valdabarátta innan Samfylkingarinnar er örugglega í uppsiglingu en hefur ekki mikið með þjóðina að gera.

Anna Björg Hjartardóttir (IP-tala skráð) 8.2.2010 kl. 22:15

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Ég er verulega tortrygginn á þessa floksforingja fundi og óttast að þar verði einhverjir teymdir.  Það er nefnilega siðblindingi þarna inn á milli sem sýnt hefur að sanleikur og ærlegheit er ekkert sem hann þarf að nota.  Með þessum fundum er hann að veiða sér sjálfsvörn og leita að brögðum til að koma í veg fyrir að við fáum að kjósa.  Þar með yrði allt þetta andskotans mál handónítt.

Hrólfur Þ Hraundal, 8.2.2010 kl. 22:52

5 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Takk fyrir innlitin öll sömul. Það eru skrítnir tímar hjá okkur!

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 9.2.2010 kl. 08:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurbjörg Eiríksdóttir
Sigurbjörg Eiríksdóttir
Mamma og amma en ung í anda að EIGIN mati. Nýorðin langamma....
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband