Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2010

Yndislegt atvik.

Gaman að Magnea hafi verið valin skyndihjálpari ársins 2009. Það er verðskuldað. Að lenda í svona aðstæðum og ganga í hlutina með svona öryggi, er ekki öllum gefið. Þessi atburður gerðist í tveggja kílómetra fjarlægð frá mínu heimili, á kirkjustaðnum Hvalsnesi. Skrítið að lesa um þetta sem sumarhús:) En víst er fjölskyldan meira þar á sumrin þó hún sé oft þar um helgar.
mbl.is Bjargaði föður sínum með hjartahnoði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klúður.


Alltaf verður maður meira og meira undrandi á Icesavemálinu og öllu klúðrinu í kring um það. Verst er þó að sumir virðast vera farnir að berjast opinberlega á banaspjótum.Við megum örugglega ekki við svona uppákomum og þetta gerir ekkert nema veikja stöðu okkar erlendis. Er of mikils til ætlast af ráðamönnum að þeir hugsi nú meira um hag heildarinnar en eigin.
mbl.is „Makalaust innlegg“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skelfilegt að lesa þetta.

Þetta hlýtur að hafa verið hrikaleg lífsreynsla. Það er hræðilegt að hugsa til þess að svona geti gerst. Mjög gott að hjónin komu fram og sögðu frá.
mbl.is „Þetta var ekkert smá sárt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steinsvaf.

Skjálftavirkni á Reykjaneshrygg! Ég hef Eldey fyrir augunum svo nálægðin er talsverð..en steinsvaf í alla nótt:) Þar að auki er jarðskjálftamælir veðurstofunnar í 20 metra fjarlægð. Gott að vel er fylgst með.
mbl.is Jarðskjálftar á Reykjaneshrygg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar kom að því!

Er það virkilega satt að sættir séu að nást milli stjórnar og stjórnarandstöðu?? Gott ef rétt er. En er það samt ekki best að við fáum að kjósa 6.mars? Eða er hún svo borðleggjandi niðurstaðan að fjórflokkarnir hætti ekki á neitt. Eitthvað finnst mér skrítið við þetta allt saman.
mbl.is Kröfðust pólitískra sátta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ja hérna.


Einkennilegt veðurfar í okkar heimshluta nú um stundir. Allt á kafi í snjó beggja vegna Atlandshafsins meðan hér hjá okkur er vetrarblíða! Mikið væri gott að sleppa við snjóinn þennan veturinn..En veturinn er nú ekki búin. Samt er betra að eiga við snjó eftir að daginn tekur að lengja..Og svartasta skammdegið er að láta undan síga.
mbl.is Washington lömuð vegna snjóa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki er ég hissa.

Fínt að heyra þetta. Ætli þetta sé ekki blanda af tvennu. Meiri útflutningi sem er gott og minni neyslu innanlands. Bara að minni neysla vísaði alltaf á góða hluti. Það gerir það ekki endilega. Fyrirtækin hafa þurft að segja upp fólki og hafa ekki verkefni og eyða því litlu í innfluttar vörur. Það ríkir stöðnun á Íslandi. Vonandi fer að birta til í atvinnumálum hjá okkur.
mbl.is Afgangur af vöruskiptum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alex er frábær!

Það var hrein unun að fylgjast með þessum varnarleik hjá Alexsander. Sjaldan eða aldrei hef ég fylgst með öllum leikjum Íslenska liðsins eins og nú. Þetta var frábær skemmtun og mikil spenna. Takk strákar ALLIR.
mbl.is Átti íslenska liðið boltann?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Sigurbjörg Eiríksdóttir
Sigurbjörg Eiríksdóttir
Mamma og amma en ung í anda að EIGIN mati. Nýorðin langamma....
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband