Leita í fréttum mbl.is

Kjánahrollur

Ég fæ nú bara kjánahroll.Shocking Eru engin takmörk fyrir hvað sömu störfunum er lofað oft og svo svikin? Á sama tíma er fólksflótti frá landinu og ekki vegur fyrir þá sem hafa farið í dýrt sérnám erlendis að snúa heim..Í hvaða þjóðfélagi býr Jóhanna?Crying
mbl.is 7 þúsund ný störf í augsýn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingvar

Mismælti kerlingin sig bara ekki eins og með Líbýumálið á  Alþingi. Hún meinti 7000 ný flugsæti til Noregs  aðra leiðina.

Ingvar, 2.9.2011 kl. 12:52

2 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Því gæti ég best trúað Ingvar!

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 2.9.2011 kl. 12:54

3 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Sammála :)

Óskar Guðmundsson, 2.9.2011 kl. 12:57

4 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Ekki það að ég vildi svo sannarlega að þetta væri rétt en ég trúi ekki Jóhönnu núorðið..Sorrý

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 2.9.2011 kl. 13:08

5 Smámynd: Óskar Guðmundsson

"Wishful Thinking" er því miður ekki það sem kemur til með að bjarga þjóðinni.

Óskar Guðmundsson, 2.9.2011 kl. 13:10

6 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Endalaust sama bullið árlega. Það er alveg ótrúlegt að Jóhanna skuli halda yfirleitt að fólk trúi henni. Ég held að heilbrigt og skynsamlegt fólk sé farið að sjá í gegnum þetta.

Datpurlegt að þær stjórnir sem eru við völd þurfi alltaf að lofa sig í hástert og það þó allt sé raunverulega í kalda koli. Alveg sama hvað gerist í þjóðfélaginu, það er allt svo gott sem þau gera og framtíðin svo björt og svo framvegis.

Hugsið ykkur hve skynsamlegra væri að ef engin stjórnarandstæða væri til og kosnir fulltrúar myndu ræða saman og komast að samkomulagi. Ég held líka að það myndi gera alþingi gott ef ræðupúltin væru tekin niður og öll mál tekin fyrir sameiginlega.

Guðni Karl Harðarson, 2.9.2011 kl. 13:46

7 identicon

"Fool me once, shame on you, fool me twice shame on me" minnir mig að máltæki nokkuð hljómi. Hér á þetta við Jóhönnu sem virðist sannfærð um eigið þvaður. Ég held að þeim fækki óðum sem trúa nokkru orði sem hún segir og meðreiðarsveinar hennar. Þessi sífellda tugga hennar um sköpun starfa sem síðan verða aldrei til segir mjög mikið um hana. Maður veit ekki hvort maður á að vera reiður út í hana eða vorkenna henni?

Hún hefur ekki gripsvit á efnahagsmálum frekar en restin af hennar þingflokki enda er efnahagsstefna Sf ESB. Steimgrímur er ekki betri (frekar en stöðnunarflokkur hans), er ekki rétt rúmlega ár síðan hann sagði að hér væri hagvöxtur og 2-3 dögum síðar komu tölur frá Hagstofunni sem sýndu fram á samdrátt.

Fjölmiðlar hefðu átt að velta honum upp úr þessu daglega þangað til hann hætti enda er maðurinn með öllu óhæfur sem fjármálaráðherra. Ef fjármálaráðherrar í t.d. Þýskalandi, Bandaríkjunum eða Frakklandi segðu eitthvað svona og hefðu svona hrapalega rangt fyrir sér yrðu þeir að segja af sér.

Ég skil ekki að Jóhanna og Steingrímur skuli ekki sjá það sem allir sjá: Hér er verið að leggja allt í rúst og ekkert gerist. Mér finnst þeirra framganga vera orðin glæpsamleg.

Helgi (IP-tala skráð) 2.9.2011 kl. 16:31

8 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Það eina sem heldur lífinu í stjórninni er hræðslan við að fá Sjálfstæðiðsflokk aftur til valda og það með Bjarna Ben í forsvari hugsið ykkur bara Bjarna Ben forsætisráðherra Íslands

Sigurður Haraldsson, 3.9.2011 kl. 20:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurbjörg Eiríksdóttir
Sigurbjörg Eiríksdóttir
Mamma og amma en ung í anda að EIGIN mati. Nýorðin langamma....
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband