Leita í fréttum mbl.is

Tekur ekki til máls

Skyldi þetta ekki vera í fyrsta skipti sem forsætisráðherra þjóðarinnar tekur ekki til máls í eldhúsdagsumræðum á Alþingi? En þetta er kannski merki um góða samvinnu innan SF!
mbl.is Jóhanna tekur ekki til máls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þetta er stórfurðulegt. Eitthvað í gangi á stjórnarheimilinu ?

Finnur Bárðarson, 14.6.2010 kl. 17:34

2 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Í þeim eldhúsdagsumræðum, sem ég hef séð, á minni "stuttu" ævi, þá minnir mig einhvern veginn, að þær hafi jafnan hafist á því, að Forsætisráðherra, geri grein fyrir því hvað hafi áunnist á líðandi þingi.

 Það er líklega ekki það merkilegt, að hægt sé að "teppa" ræðustól Alþingis í tíu mínútur, með frásögnum af afrekum ríkisstjórnarinnar, þetta þingið.

Kristinn Karl Brynjarsson, 14.6.2010 kl. 17:55

3 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Sæl Sigurbjörg,

Ég man nú ekki svo mikið eftir eldhúsdagsumræðunum enda verið fjarverandi í 15 ár, en ég held þetta hljóti að vera í fyrsta skipti sem forsætisráðherra tekur ekki til máls og eins að enginn þingmaður eða ráðherra stjórnarflokks taki til máls.  Ég veit ekki hvað er í gangi og finnst þetta furðulegt í ljósi þess hvað hefur verið að gerast í íslensku þjóðfélagi undanfarið ár, s.s. rannsóknarskýrslan, endurbygging eftir hrun (eða ekki endurbygging eftir því hvernig á það er litið;) o.s.frv.  Þetta lyktar einhvernvegin eins og Samfylkingin sé ennþá stikkfrí og þurfi ekki að vera með, sem mér finnst alveg fráleitt.

Kveðja,

Arnór Baldvinsson, 14.6.2010 kl. 18:54

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Forsætisráðherra hefur auðvitað framsögu þegar umræður eru um stefnuræðu forsætisráðherra. 

Sú umræða er ekki núna og á slíkum eldhúsdegi hefur verið allur gangur á því hvort forsætisráðherra, eða formenn flokkana taki þátt. Ekkert nýtt í því.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 14.6.2010 kl. 19:09

5 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Axel.Ekki sakna ég þruglinu sem upp úr henni vellur.

Ragnar Gunnlaugsson, 14.6.2010 kl. 19:40

6 identicon

En það er enginn ráðherra frá Samfylkingunni sem tekur til máls.  Manni finndist rétt að félagsmálaráðherra segði nú eitthvað eftir hremmingarnar sem hafa dunið á velferðarkerfinu.  En það er bara VG sem sendir einn ráðherra, "samstarfsflokkurinn" gerir það ekki.

Jóhannes (IP-tala skráð) 14.6.2010 kl. 20:16

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það káfar ekki upp á mig Ragnar, hvers þú saknar og hvers ekki.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 14.6.2010 kl. 21:01

8 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Forsætisráðherra hefur yfirleitt tíundað allt það góða sem hann hefur komið í framkvæmd á hverfandi þingi við eldhúsdagsumræður.

Ekki man ég eftir því að forsætisráðherra hafi ekkert  að segja við þær umræður.

Það er auðvitað virðingarvert að teppa ekki stólinn með einskisnýtu tali.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 14.6.2010 kl. 21:42

9 identicon

Aumingja Axel.... Alltaf í vörn fyrir Samfylkinguna.

Af hverju viðurkennir þú ekki það sem satt er. Forsætisráðherra hefur yfirleitt alltaf talað á síðasta degi þingsins.

nema núna...

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 14.6.2010 kl. 22:15

10 Smámynd: Hörður B Hjartarson

Jaaaa - - - -  mér kæmi ekki á óvart þótt hún segði bless , þ.e. eftir þessi 4ár , þannig fynnst mér statusinn hafa verið á henni all lengi .

Hörður B Hjartarson, 15.6.2010 kl. 04:39

11 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Birgir, ef þú skoðar bloggið mitt þá muntu sjá að ekkert skortir á gagnrýni mína á Samfylkinguna.

Heimi og öðrum sem segja þögn Jóhönnu einsdæmi vil ég benda á að DO hafði ekkert að segja á eldhúsdegi 16.05.2001

Davíð hafði ekkert að segja á eldhúsdegi 24.04.2002

Davíð hafði heldur ekkert að segja á eldhúsdegi 12.03.2003.

Hér eru 3 dæmi fundin eftir stutta leit, þau eru eflaust fleiri því það er ekki sjálfgefið að forsætisráðherra tali á eldhúsdegi nema þegar verið er verið að fjalla um stefnuræðu hans.

Hafa skal það sem sannara reynist!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.6.2010 kl. 11:01

12 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Gott að vita Axel..Ég hafði annað á tilfinninguni ..Sem sagt, árin 2001-3 hefur Dabbi þagað þunni hljóði

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 15.6.2010 kl. 11:22

13 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Davíð talaði auðvitað þegar stefnuræða hans var til umræðu. Ég nennti ekki að leita meira, en þetta eru örugglega ekki einu tilfellin þar sem forsætisráðherra tekur ekki þátt í eldhúsdegi að vori.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.6.2010 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurbjörg Eiríksdóttir
Sigurbjörg Eiríksdóttir
Mamma og amma en ung í anda að EIGIN mati. Nýorðin langamma....
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband